Margt að gerast í mínu lífi :)
5. maí 2008 — thuridurHæhæ.. ég er ekki búin að skrifa neitt hér í langan tíma :/
En já það er nú samt frá ýmsu að segja
ég er ekki lengur að borða eftir danska.. en það er ástæða fyrir því.. ég er semsagt ólétt og er gengið í dag rúmar 15 vikur
Eintóm gleði og hamingja hér á bæ
Ég er því miður búin að vera slæm af ógleðinni og því ekki getað fylgt ddv! En ætla mér að reyna að hafa ddv til viðmiðunar þegar ógleðin fer að minnka
Ég átti að fara í aðgerð núna í feb-mars og láta taka hluta af skjaldkirtlinum útaf þessum hnútum sem fundust en þar sem ég var orðin ólétt þá verður því frestað þar til að ég er búin að eiga!
En já ég vildi bara láta aðeins vita af mér!